Á vefsvæði embætti landlæknis má finna leiðbeiningar um hvernig má forðast smit vegna covid 19. Eftirfarandi tilmæli og leiðbeingar er tekið þaðan:
Þú getur hjálpað þér og öðrum að forðast smit með því að fylgja þessum ráðum:
- Þvoðu hendur þínar reglulega með vatni og sápu, minnst 20 sekúndur í hvert skipti. Gert hefur verið myndband sem útskýrir mikilvægi handþvottar sem hluta af sóttvörnum, lengri útgáfa og styttri útgáfa.
- Ef vatn og sápa eru utan seilingar er gott að nota handspritt, til dæmis þegar þú hefur notað greiðslukort eða komið við fleti sem margir snerta, svo sem hurðarhúna og handrið. Á vef landlæknis eru góðar upplýsingar um hvernig gæta má varúðar gegn sýkingum.
- Forðastu að bera hendur upp að andlitinu, sérstaklega augum, nefi og munni.
- Þrífðu oftar fleti sem eru mikið notaðir.
- Ef þú þarft að hósta eða hnerra skaltu nota olnbogabótina eða einnota klúta. Þannig kemurðu í veg fyrir að úði fari á hendur og þannig forðast smit. Gættu þess að hósta eða hnerra ekki á aðra.
- Takmarkaðu náin samskipti við annað fólk, t.d. handabönd og faðmlög. Finndu aðrar leiðir til þess að heilsa sem ekki fela í sér snertingu.
- Notaðu grímur þar sem erfitt er að virða fjarlægðarmörk. Grímur eru mikilvæg viðbót við einstaklingsbundnar sóttvarnir til að forðast smit. Þær koma hins vegar ekki í stað handþvottar og annara sóttvarna.
- Þar sem ekki er hægt að tryggja 1 metra fjarlægð milli ótengdra einstaklinga með fjöldatakmörkun er krafist notkunar andlitsgríma sem hylur nef og munn. Mikilvægt er að kynna sér leiðbeiningar um notkun á hlífðargrímum. Þetta á t.d. við um almenningssamgöngur, þ.m.t. innanlandsflug og farþegaferjur, og starfsemi s.s. hárgreiðslustofur og nuddstofur.
- Munum að rök og skítug gríma gerir ekkert gagn og getur aukið sýkingahættu. Jafnframt gerir einnota gríma, sem notuð er oftar en einu sinni, ekkert gagn og getur einnig aukið sýkingarhættu. Hlífðargríma, sem hylur ekki bæði nef og munn eða er höfð á enni eða undir höku, gerir heldur ekkert gagn til að forðast smit.
- Forðastu að umgangast fólk sem er með einkenni flensu.
Ef þig grunar að þú sért með smit
Haltu þig heima og hafðu samband í síma við heilsugæsluna þína, Læknavaktina í síma 1700 eða netspjallið á heilsuvera.is. Heilbrigðisstarfsfólk verður þar til svara og ráðleggur þér um næstu skref. Það er mjög mikilvægt að þú farir ekki í eigin persónu á læknavakt eða heilsugæslu. Ef þú greinist með COVID-19, getur smáforritið Rakning C-19 hjálpað til við að rifja upp ferðir þínar þegar upp kemur smit eða grunur um smit. Appið er mikilvægur hlekkur í því viðamikla starfi sem er í gangi hér á landi vegna COVID-19.
Ef þig grunar að einhver í þínu nærumhverfi sé smitaður/smituð
Gættu þess að eiga ekki í nánu samneyti við viðkomandi til að forðast smit. Ráðlegðu viðkomandi að hafa samband við heilsugæsluna, 1700 eða Heilsuveru.is og ræða einkenni sín og fá ráð um hvernig best er að bregðast við.
Hér eru upplýsingar um kórónaveiruna á auðlesnu máli sem voru unnar af Landssamtökunum Þroskahjálp.
Helstu einkenni COVID-19
Einkenni líkjast helst inflúensusýkingu, hósti, hiti, hálssærindi, andþyngsli, bein- og vöðvaverkir og þreyta, meltingarfæraeinkenni (sérstaklega hjá börnum), skyndilegt tap á lyktar- og bragðskyni. COVID-19 getur einnig valdið alvarlegum veikindum með neðri öndunarfærasýkingu og lungnabólgu, sem koma oft fram sem öndunarerfiðleikar á 4.– 8. degi veikinda.
Þessi texti er tekinn af vef embætti landlæknis.
Andleg heilsa á tímum Covid 19
Hér að neðan má finna greinar og fróðleik um hvernig hægt sé að efla bæði andlega og líkamlega heilsu á tímum Covid 19.