Í þessari uppskrift notaði ég glútenlaust mjöl frá Bob’s Red Mill sem heitir Paleo baking flour mix og er mjög gott að nota fyrir prótein pönnukökur. Það má líka nota hvaða glútenlausa mjöl sem er t.d. bókhveitimjöl eða hreint möndlumjöl o.fl tegundir af mjöli.
Ég reyni að gera 2-3x skammta í einu og frysta hluta af þeim til að henda í ristavélina seinna þegar ég hef lítinn tíma. Þessar pönnslur eru próteinríkar, sykur, glúten og mjólkurlausar og henta því vel fyrir þá sem eru á sérfæði. Það er hægt að leika sér endalaust með álegg en mitt uppáhald er lífrænt hnetusmjör með chiafræjum frá Himneskri Hollustu ásamt sykurlausri bláberjasultu frá Good Good brand. Toppað með banana eða fíkjusneiðum og dass af hampfræjum.
Svo er afar vinsælt á mínu heimili að nota sykurlaust súkkulaðiálegg frá Good Good brand, toppað með jarðaberja sneiðum. Einnig er hægt að skella smjöri, osti og gúrku eða eplasneiðum, einfalt og gott. Svo má nota kókósrjóma t.d. frá Coco Cuisine og fersk bláber, bara eftir því hvernig stuði maður er í það skiptið…
Innihald í prótein pönnukökur:
- 1/2 bolli möndlumjöl eða Paleo baking flour mix
- 1 msk möluð hörfræ eða möluð chia fræ (Now)
- 1 tsk vínsteinslyftiduft (ef vill)
- 1/4-1/2 stappaður banani
- 3 msk möndlumjólk (Isola)
- 3-5 dr vanillustevía (Now)
- Smá sjávarsalt
- 1 tsk kanill
Hræra öllu hráefninu saman með pískara í skál, setja kókósolíu á miðlungs heita pönnu eða vöfflujárn og baka þar til tilbúið í gegn á báðum hliðum. Toppa með uppáhalds álegginu þínu og njóta. Þessar prótein pönnukökur munu líka hitta í mark hjá yngstu kynslóðinni!
Skoðaðu fleiri heilsusamlegar uppskriftir hér inn á H Magasín.