Gerða Jónsdóttir íþróttafræðingur er einn vinsælasti þjálfari landsins. Hún veitir okkur innsýn í lífsstíl sinn sem einkennist af miklu heilbrigði, góðri næringu, dekri og bætiefnum í bland. Nýjasta viðbótin hjá Gerðu í þeirri deildinni er Maca frá NOW sem er þekkt fyrir hormónajafnandi eiginleika.
Hvernig hefst klassískur dagur í lífi þínu?
Ég vakna kl. 5.45 og byrja daginn á að fá mér glas af vatni, vítamín og kaffi. Ég tek alltaf inn EVE, D-3 & K-2, C 1000 vítamín og Omega-3 en tek svo önnur bætiefni inn á milli. Ég er mjög hrifin af Astaxanthin á sumrin þar sem það meðal annars verndar húðina gegn sólargeislum og hefur jákvæð áhrif á endurheimt vöðva og þrek. Í kringum blæðingar nota ég auka B12 og Iron Complex. Öll þessi vítamín eru frá NOW. Þegar ég fæ mér kaffi set ég möndlusmjör frá MUNA út í vatn, þeyti það í blandara, flóa það og helli út í kaffið. Þetta er langhreinasta og besta möndlumjólkin að mínu mati og ég á hana alltaf til inni í ísskáp.
Hvað borðar þú helst í morgunmat?
Í morgunmat um kl. 10 fæ ég mér yfirleitt soðið egg og búst. Ég nota alltaf L-glutamine í bústið frá NOW þar sem ég er að vinna í því að byggja upp þarmana og Collagen fyrir liði, vöðva, húð, hár og bein.
Bústið samanstendur af ananas, bláberjum, engiferi, skeið af möndlusmjöri frá MUNA og höfrum frá MUNA, skeið af L-glútamíni, Collageni og MCT olíu frá NOW sem hjálpar til við orkuskipti líkamans og dregur úr sykurlöngun.


Ertu skipulögð þegar kemur að mataræði?
Ég myndi ekki segja að ég væri skipulögð þegar kemur að mataræði þar sem dagarnir eru mjög misjafnir. Ég reyni að fylgja 80/20 reglunni, þ.e. að borða 80% hollt en leyfi mér líka að njóta inn á milli.
Hvert er algengasta millimálið?
Yfirleitt lífrænar hrískökur frá MUNA með MUNA hnetusmjöri, hampfræjum eða með eggjum og sjávarsalti. Þetta fer mjög vel í maga fyrir þau sem eru ekki með góða meltingu. Ég er mjög hrifin af tahini frá MUNA sem ég fæ mér með litlu MUNA maískökunum. Ef ég er á hraðferð finnst mér best að fá mér möndlur og þurrkað mangó eða gráfíkjur.
Hver er draumahádegisverðurinn?
Góð súpa og réttur á Garðinum þar sem allt grænmeti er lífrænt og öll hráefni fyrsta flokks. Einnig finnst mér gott að eiga til heimatilbúið múslí. Ég bý það til úr öllum fræjum og hnetum sem mér detta í hug, kókosflögum, döðlum og berjum og blanda saman við MUNA hunang og hita í ofni. Það borða ég svo með grískri jógúrt.


Á hvaða tíma dags finnst þér best að hreyfa þig?
Mér finnst alltaf best að hreyfa mig fyrir hádegi, þá hef ég mesta orku og hreyfingin hefur lítil áhrif á svefninn. Ég þjálfa mikið í heitum sal og nota alltaf B12 Energy Boost frá NOW, sem inniheldur 50 mg af náttúrulegu koffíni úr grænu tei, og B12, sem ég blanda í vatn, og Hydrate freyðitöflurnar sem hjálpa mér að uppfylla þörf fyrir sölt og steinefni. Mér finnst ekki duga að drekka bara vatn.
Hver er uppáhaldskvöldmaturinn?
Klassískur kvöldmatur er hakk og spagettí, fiskur eða kjöt með grænmeti og góðu salati, olíum og uppáhalds chili-kasjúhnetunum mínum frá MUNA sem gera allt betra.
En besti sukkmaturinn?
Heimatilbúin pítsa með chili og döðlum. Svo dýfi ég endunum í MUNA hunang. Ég fæ mér alltaf Gluten Digest frá NOW áður sem hjálpar mér við að melta og brjóta niður fæðuna.
Hver er draumaeftirrétturinn þegar þú vilt gera vel við þig?
Ég hef alltaf þörf fyrir að fá mér eitthvað sætt eftir matinn og oftast dugar að eiga döðlur frá MUNA. Ég fylli döðluna með MUNA möndlu- eða hnetusmjöri. Þegar það dugar ekki til bæti ég dökku súkkulaði við. Annars elska ég hrákökur með döðlum, súkkulaði, hnetum og hnetusmjöri og þurrkuðum berjum, eins og trönuberjum. Líka allt súkkulaði!
Hver er rútínan þín á kvöldin?
Á kvöldin tek ég alltaf magnesíum- og kalsíumblönduna frá NOW sem hjálpar mér að sofa betur og slakar á vöðvunum. Stundum finnst mér ég ekki ná að uppfylla próteininntökuna yfir daginn og þá fæ ég mér eitt búst eftir kvöldmat með Plant Protein Complex frá NOW og heimatilbúinni möndlumjólk. Ég þarf að hafa algjört myrkur í svefnherberginu, hvít rúmföt og hlusta á podcast áður en ég fer að sofa til að ná mínum besta svefni og fara upp í rúm klukkutíma áður en ég ætla sofna til þess að ná mér vel niður.


Ertu A eða B-týpa?
Ég er algjör A-manneskja og hef alltaf verið.
Stundarðu hugleiðslu eða annað til að staldra við í amstri dagsins og slaka á?
Ég nýti aðallega náttúruna til að róa hugann, hvort sem það er að ganga á fjöll, fara í sjóinn/sund eða á snjóbretti. Það gefur mér hugarró og er mín hugleiðsla.
Hvernig dekrar þú við sjálfa þig?
Ég dekra við mig með góðum mat, húðmeðferðum, nuddi, ferðalögum, nýjum íþróttafötum, góðum eftirréttum og restin af þeim lista væri efni í langa bók.


Smoothie-skál fyrir meltinguna
½ bolli ananas
½ bolli bláber
½ grænn banani
½ bolli MUNA hafrar
1 tsk. NOW L-glutamine
2 tsk. NOW collagen
1 msk. MUNA möndlusmjör og vatn
Ofan á:
MUNA kókosflögur
MUNA hampfræ
Banani
MUNA hnetusmjör