Fræðslukvöld 8. maí: Hreyfing, mataræði, hugarfar og bætiefni

Fræðslukvöld 8. maí: Hreyfing, mataræði, hugarfar og bætiefni

Now_fraedslukvold_fb

Mataræði og hreyfing: Tilraunastarfsemi og meðvitaðar ákvarðanir

Indíana Nanna, hópþjálfari og matgæðingur, deilir með okkur sinni reynslu, breytingum sem hún hefur gert síðustu ár og góðum en jafnframt einföldum venjum sem hún hefur haldið fast í til að stuðla að líkamlegri og andlegri vellíðan. 

Aukinn árangur með jákvæðu hugarfari

Beggi Ólafs fjallar um mikilvægi þess að tileinka sér jákvætt hugarfar sem getur hjálpað til við að bæta árangur og vellíðan. Í fyrirlestrinum verður farið yfir þrjá þætti sem Beggi telur að fólk geti haft ávinning á að nýta sér á fjölmörgum sviðum í lífinu.

Bætiefni og góðgerlar sem hluti af heilbrigðum lífsstíl

Þegar velja á bætiefni þarf heldur betur að vanda valið því í þeim geira leynist ýmislegt óæskilegt. Áður en bætiefni eru valin þarf að hafa í huga að þau eru sjaldnast „töfralausnin“ sem leysa öll vandamál, en þau geta þó verið mjög góð viðbót við heilbrigt líferni. Í fyrirlestrinum mun Arnór Sveinn tala um bætiefni og góðgerla sem mikilvægan hluta af heilbrigðum lífsstíl.

Miðaverð 3.000 kr – allir fá goody bag sem jafngildir verði miðans og gott betur en það!

KAUPA MIÐA

Indíana Nanna

NÝLEGT