Sigríður Lárusdóttir 57 ára lífeindafræðingur lætur ekkert stoppa sig og ætlar sér að taka þátt í boðsundi yfir Ermasundið þrátt fyrir að vera með stóma. Icepharma söluaðili fyrir Coloplast stómavörur á Íslandi, gerðist nýlega stoltur styrktaraðili Sigríðar og vill leggja sitt af mörkum við að vekja athygli á málefninu.
Sagan hennar Sigríðar Láru spannar heil 33 ár en þá fæddi hún sitt fyrsta barn. Óhætt er að segja að fæðingin hafi ekki gengið sem skildi en frá henni hefur Sigríður farið í hátt á annan tug aðgerða og inngripa í þeim tilgangi að reyna að bæta lífsgæði sín. Þrátt fyrir þessa krefjandi og erfiðu vegferð hefur Sigríður lagt sig fram við að lifa lífinu til fullnustu, hreyft sig og stundað ævintýralega útivist.
Ristilstóma eini kosturinn
Árið 2021 komust læknar Sigríðar að þeirri niðurstöðu að það væri enginn annar kostur eftir en að Sigríður færi í aðgerð og fengi ristilstóma. Hófst þá nýr taktur í lífi Sigríðar þar sem hún þurfti að læra að lifa lífinu með stóma og láta nýja drauma rætast.
Talandi um drauma hafði Sigríður átt þann draum áður en stóma varð partur af lífi hennar að synda Ermasundið. Hafði hún heyrt af hópi kvenna sem ætlaði sér að synda boðsund yfir Ermarsundið í júní 2022 og fannst henni hugmyndin afar spennandi. Sigríður ákvað því að slást í hópinn enda hefur hún verið dugleg að stunda sjóböð og sjósund og líður hvergi betur en undir sjávarborðinu.
Staðráðin að ná markmiðinu
Tíminn frá aðgerðinni hefur ekki verið án áskoranna en Sigríður stoppar hvergi þegar kemur að því að leita lausna við að lifa eins innihaldsríku lífi og hún mögulega getur miðað við aðstæður. Sigríður er staðráðin í því að láta stómann ekki stoppa áætlanir sínar um sundið yfir Ermasund enda er ljóst að ef henni tekst ætlunarverk sitt þá verður hún fyrsti stómaþeginn í heiminum sem syndir Ermasundið. Það er ljóst að Sigríður vill vera öðrum stómaþegum góð fyrirmynd og ætlar hún sér að vekja athygli á því með aðstoð og fræðslu fagfólks og góðum stómavörum að vel er hægt að sigrast á þeim áskorunum sem fylgja því að vera með stóma.
Sundhópur Sigríðar ber heitið Bárurnar og má fylgjast með vegferð þeirra nánar hér: Bárurnar
Icepharma gerði nýverið styrktarsamning við Sigríði og vill leggja sitt af mörkum við að aðstoða hana við að vekja athygli á málefninu. Á næstu mánuðum munu aðilar í sameiningu vinna að gerð fræðsluefnis fyrir stómaþega.


Frá vinstri: María Bragadóttir (fjármálastjóri), Geirþrúður Pálsdóttir (deildarstjóri), Sigríður Lárusdóttir (kjarnakona og sundkappi) og Sigrún Hrund Gunnarsdóttir (viðskiptastjóri).