Ólöf Sæmundsdóttir heimilisfræði kennari við Hvolsskóla á Hvolsvelli á heiðurinn af þessari bragðgóðu, fallegu og hollu köku. Lokaverkefni hennar í Kennaraháskólanum fjallaði um það hvernig hægt væri að sæta kökur með ávöxtum og döðlum og er óhætt að segja að nemendur Hvolsskóla njóti góðs af. Uppskriftin birtist í heilsublaði Nettó sem kom út í vikunni í tilefni af heilsu- & lífsstílsdögum Nettó.
Gómsæt döðlu- og baunakaka
140 g nýrnabaunir frá Muna (þurrar nýrnabaunir lagðar í bleyti yfir nótt) eða 350 g nýrnabaunir úr niðursuðudós frá Bunalun
280 g döðlur frá MUNA
8 egg
150 g lint smjör
120 g kakó
3 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1 tsk vanilludropar
Krem
Tvö lög af kremi
220 g döðlur frá MUNA
200 g lint smjör
2 msk kakó
2 msk kaffi eða heitt vatn
Aðferð
- Leggið nýrnabaunir í bleyti yfir nótt. Skiptið um vatn og sjóðið í rúmar 60 mínútur. Sigtið vatnið frá og leggið baunirnar til hliðar. Soðnar baunir eiga að vera u.þ.b. 350 grömm. Ef notast er við nýrnabaunir úr niðursuðudós, hellið vatninu frá og setjið í sigti. Skolið baunirnar vel undir krana.
- Hitið ofninn í 170°C blástur. Hafið tvö hringlaga form tilbúin, jafnvel nokkur muffinsform líka. Maukið döðlurnar í matvinnsluvél með tveimur eggjum þannig að döðlurnar verði að mauki.
- Setjið hin 6 eggin út í og blandið vel saman.
- Setjið soðnu nýrna baunirnar út í og maukið vel saman með eggjahrærunni. Oft þarf að skafa niður skálar barmana með sleikju.
- Látið öll hin hráefnin út í og blandið saman í matvinnsluvélinni.
- Skiptið deiginu í tvö form, einnig hægt að nota muffinsform.
- Setjið inn í heitan ofn og bakið í um það bil 20 mín. Fer eftir þykkt hversu lengi kakan þarf að vera. Notið prjón til að athuga hvort hún sé tilbúin.


Krem
- Maukið döðlurnar ásamt kaffinu/vatninu í matvinnsluvél.
- Látið smjörið og kakóið út í hrærið vel saman í vélinni.
- Kreminu smurt á kalda kökuna.
- Njótið.
Um kökuna
Dásamlega mjúk súkkulaðikaka
Próteinrík
Trefjarík
Ekkert glúten
Ekki viðbættur hvítur sykur
Aðeins náttúruleg hráefni og engin gervisæta.