Grænn ofur-smoothie

Grænn ofur-smoothie

  • 2 lauf af grænkáli 
  • frosinn mangó eftir smekk 
  • 1 frosinn banani 
  • engifer eftir smekk 
  • 1-2 msk hampfræ eða chia fræ frá Himneskri Hollustu 
  • 1/4 – 1/2 tsk af túrmerik frá Himneskri Hollustu + dass af svörtum pipar 
  • 1/2 avocado (má sleppa)
  • Þynnið með möndlumjólk, kókosvatni eða ávaxtasafa

Graenn-smoothie-1
Aðferð:
Setjið allt hráefni í blandara og blandið vel saman. Þynnið með möndlumjólk, kókosvatni eða ávaxtasafa eftir smekk. Einfalt og fljótlegt! Ef blandarinn ykkar er ekki kraftmikill þá er eðlilegt að grænkálið leysist ekki alveg allt upp.

Þessi uppskrift er alls ekki heilög og það má breyta hlutföllunum eins og manni sýnist. Mér persónulega finnst æðislegt að setja slatta (og þá meina ég slatta) af engifer út í smoothie-drykkina mína en sumum finnst engifer ekkert sérstakt og setja kannski lítið af því en ég myndi alls ekki sleppa því! Það sama gildir með hampfræin og túrmerik. Ef þið eruð ekki fyrir það þá bara um að gera og setja aðeins minna af því eða nota chia fræ í staðinn fyrir hampfræ. Ég reyni líka að troða avocado í allt sem að ég borða svo að sjálfsögðu setti ég avocado í smoothie-drykkinn minn en það er til þess að fá holla fitu. Ég er með mjög þurra húð svo ég reyni að borða fæðu sem inniheldur holla og góða fitu, eins og avocado. Það má samt alveg sleppa avocado ef maður vill hann ekki.

Hendið klökum út á smoothie-drykkin ef þið viljið og njótið!

 Ef þið viljið fylgjast betur með mér getið þið fylgt mér á Instagram 

Þangað til næst, verið heil og sæl! 

Höfundur: Asta Eats

NÝLEGT