Guðrún Bergmann: Vertu með fallega og heilbrigða brúnku í sumar

Guðrún Bergmann: Vertu með fallega og heilbrigða brúnku í sumar

Astaxanthin er besta sólarvörnin

Astaxanthin frá NOW er eitt af þeim bætiefnum sem ég tek reglulega, einkum og sér í lagi þegar fer að vora eða ef ég er á leið til sólarlanda. Að mínu mati er þetta næringarefni sem allir Kanaríeyjafarar ættu að taka. Astaxanthin verndar gegn skaðlegum geislum sólarinnar og ég verð aldrei jafn fallega brún og þegar ég hef undirbúið húðina með því að taka inn astaxanthin í einhvern tíma fyrir sólarferð. Að sjálfsögðu tek ég það svo líka á meðan ég er í ferðinni. 

Astaxanthin verndar húðina sérstaklega gegn frumudauða sem orsakast af útfjólubláum (UV) geislum sólarinnar.  Ólíkt sólkremum sem borin eru á húðina, blokkar astaxanthin ekki UV geislana, þannig að það kemur ekki í veg fyrir að UVB geislarnir breytist í D–vítamín í húðinni. Það ver húðina einfaldlega gegn skemmdum. Því er best að láta sólina skína óhindraða á húðina í eina klukkustund eða svo, áður en sólarvörn er borin á hana – ef planað er að vera allan daginn í sólinni. 

Capture

Öflugt og breiðvirkt andoxunarefni

Astaxanthin er skylt beta-karótíni, lúteini og canthaxanthin, þótt einstök sameindauppbygging þess geri það bæði öflugra og einstakara en önnur karótín. Astaxanthin er talið vera eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar, en það er unnið úr Haematococcus örþörungum, sem framleiða astaxanthin til að vernda viðkvæma þörungana fyrir sterkum útfjólubláum (UV) geislum sólarinnar og öðru álagi úr umhverfinu. Rannsóknir hafa sýnt að það er mun öflugra á margan hátt en E-vítamín, C-vítamín, beta-karótín og lútein. 

SVONA VIRKAR ASTAXANTHIN Í LÍKAMANUM:

  • Það nær til allra hluta frumnanna, bæði að utan og innan.
  • Það kemst í gegnum heilablóðþröskuldinn til að vernda heilann og taugakerfið.
  • Það kemst í gegnum blóðþröskuld sjónhimnunnar til að veita augunum vernd.
  • Það hefur áhrif um allan líkamann, í öllum líffærum og í húðinni.  

Aðrir góðir eiginleikar

Ólíkt öðrum andoxunarefnum, einkum verksmiðjuunnum karótínum, skortir astaxanthin hæfni til umbreytast í oxandi efni, jafnvel þótt mikið sé tekið inn af því, en slíkt gerist hins vegar hjá ýmsum öðrum andoxandi efnum. Astaxanthin býr yfir ýmsum öðrum eiginleikum en að framan er getið, því það getur:

  • Eflt ónæmiskerfið með því að auka mótefni í líkamanum.
  • Stuðlað að vernd gegn hjarta- áföllum.
  • Stuðlað að vernd gegn myndun krabbameinsfrumna.
  • Stuðlað að vernd gegn hrörnun augnbotnanna.
  • Er vörn gegn Alzheimer’s og Parkinson’s.
  • Komið jafnvægi á blóðþrýsting.
  • Dregið úr vandamálum í blöðruhálskirtli.
  • Aukið varnir líkamans gegn kvefi.
  • Komið í veg fyrir og dregið úr sykursýki týpu 2.
  • Komið í veg fyrir tannholdssjúkdóma.
  • Aukið æxlunargetuna.
  • Verndað alla hluta frumna gegn oxandi skemmdum.

Eins og ofangreindur listi sýnir er astaxanthin eitt af mikilvægari andoxunarefnunum og það sem ætti kannski að setja efst á lista yfir dagleg bætiefni. Nauðsynlegt er að taka það inn sem bætiefni, því það fæst lítið af því úr fæðunni, eða einungis um 2 mg úr 120 g skammti af villtum laxi. 

Það tekur astaxanthin 12-19 klukku- stundir að hámarkast í blóðinu og eftir það brotnar það niður á 3-6 klukkustundum. Þess vegna þarf að taka eina daglega og ef verið er að nota það sem vörn gegn sólinni, en gott að taka það í nokkrar vikur áður en farið er í sólarfrí til að leyfa því að byggjast upp í kerfinu.

Frábært fyrir íþróttamenn

Margir íþróttamenn nota astaxanthin, einkum þeir sem þurfa mikið úthald. Hvers konar líkamsrækt framleiðir í eðli sínu frjálsar stakeindir (oxandi efni) í líkamanum. Sem andoxunarefni dregur astaxanthin úr þeim áhrifum og gerir meira til.

Mesta magn astaxanthins finnst í vöðvunum á villtum laxi. Vísinda- menn leiða að því líkur að þetta rauða efni sé að hluta til ástæðan fyrir hinu mikla úthaldi laxins, þegar hann syndir upp ár og stekkur fossa.

Því nýtist astaxanthin vel þeim íþrótta- mönnum sem stunda íþróttir sem gera kröfu um mikið úthald, vegna þess að:

  • Það dregur úr frjálsum stakeindum og hraðar því að líkaminn jafni sig eftir álag.
  • Það dregur úr framleiðslu og upp- söfnun á mjólkursýru og dregur því úr vöðvaverkjum.
  • Það styrkir starfsemi hvatberanna (orkuflutningahluti frumnanna) – en undir áreynslu framleiða hvatberarnir meiri orku. Affleiðing þess er líka framleiðsla á frjálsum stakeindum, en astaxanthin verndar gegn áhrifum þeirra.

Astaxanthin er í raun einstakt meðal andoxunarefna vegna þess að það getur samtímis tekist á við margar tegundir af frjálsum stakeindum, en það er sjaldgæfur eiginleiki meðal andoxunarefna.

Astaxanthin verndar gegn bólgum

Ofan á alla framangreinda eiginleika bætist svo að astaxanthin dregur úr bólgum og nýtist vel gegn nánast hvaða bólguástandi sem er í líkamanum. Það á við um bólgur allt frá liðvandamálum eins og liðagigt, hvers konar úlnliðsvandamálum eða tennisolnboga.

Heimildir: 
www.drmercola.com 
www.antioxidants-for-health-and-longevity.com 
www.wellnessmama.com

Astaxanthin fæst í Nettó, Hagkaup, Fjarðarkaup og í stökum apótekum.

Þú getur einnig verslað hana hér .

 

www.gudrunbergmann.is
Höfundur:  Guðrún Bergmann

Húðin er okkar stærsta líffæri og því þurfum við að hugsa vel um hana. Astaxanthin er frábært sem innri sólarvörn, þar sem það verndar húðina gegn útfjólubláum sólarskemmdum, eykur teygjanleika hennar, dregur úr fínum línum og eykur rakastig hennar. Það er talið vera eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar og mælingar hafa sýnt að það sé öflugara en E-vítamín, C-vítamín, beta-karótín og lútein. Astaxanthin dregur einnig úr bólgum og nýtist vel gegn nánast hvaða bólguástandi sem er, allt frá liðvandamálum eins og liðagigt, til krabbameina. Það er einnig talið auka orku og úthald hjá íþróttamönnum. 

NÝLEGT