Embætti landlæknis, Vinnueftirlit ríkisins og VIRK Starfsendurhæfingarsjóður hafa undanfarna mánuði unnið að viðmiðum til að tryggja að vinnustaðir hafi góð verkfæri til að skapa heilsueflandi umhverfi.
Verkefnið um Heilsueflandi vinnustaði byggir á sömu hugmyndafræði og verkefni um Heilsueflandi samfélag og Heilsueflandi leik-, grunn-, og framhaldsskóla.
Markmið verkefnisins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði. Í samstarfinu felst mótun viðmiða fyrir heilsueflandi vinnustaði sem og upplýsingamiðlun til að tryggja að vinnustaðir hafi góð verkfæri til að skapa heilsueflandi umhverfi.
Til að ná markmiðum verkefnisins verður litið til erlendra fyrirmynda í sambærilegum verkefnum sem hafa gefist vel sem og nýttur grunnur að heilsueflingu á vinnustöðum sem þegar er til staðar hér á landi.
Óskað er eftir umsóknum frá vinnustöðum af öllum stærðum og gerðum til að taka þátt í tilraunaverkefni þar sem viðmiðin verða prufukeyrð. Um er að ræða spennandi verkefni sem allir starfsmenn vinnustaðar geta sameinast um. Fræðsla og stuðningur verður í boði á tilraunatímabilinu. Þátttaka í verkefninu krefst skuldbindingar af hálfu vinnustaðarins á árinu 2020.
Áhugasamir sendi upplýsingar um stærð og gerð vinnustaðar á netfangið ingibjorgl@virk.is Opnast í nýjum glugga