Heimalagað jólagranóla

Heimalagað jólagranóla

Innihald:

Þurrefni:

  • 3 dl af grófum höfrum frá Himneskri Hollustu 
  • 1/2 dl af graskersfræjum frá Himneskri Hollustu
  • 1 dl af pekanhnetum frá Horizon (sirka einn pakki)
  • 1 dl af þurrkuðum trönuberjum frá Horizon (sirka einn pakki)
  • 1 msk kanill frá Himneskri Hollustu
  • 1/2 tsk múskat 
  • 1/2 tsk engifer 

Blautefni:

_MG_6789

Aðferð:

Byrjið á því að setja hafrana, pekanhneturnar og graskersfræin í stóra skál og hrærið því saman. Gott er að brjóta pekanhneturnar niður í smærri bita en þar kemur kökukeflið sterkt inn! 

Ég set þurrkuðu trönuberin eftir að ég er búin að rista granólablönduna í ofninum.

Bætið kryddblöndunni svo næst út á og hrærið henni vel saman við hafrana, hneturnar og fræin. Næst skal setja möndlusmjörið og hlynssírópið út á og blanda öllu vel saman. Mér þykir best að blanda þessu saman með sleikju. 

Það er mikilvægt að möndlusmjörið sé ekki kekkjótt heldur fínt og þunnt svo það sé hægt að blanda því auðveldalega saman við hin hráefnin.

Leggið granólablönduna á plötu með bökunarpappír og dreifið vel úr blöndunni yfir plötuna. Við viljum þunnt lag ekki þykkt.

Þetta er mikilvæga skrefið! Setjið granólablönduna inn í ofn á 150°C og ristið í um það bil 40 mínútur en hrærið í granólablöndunni á 10-15 mínútna fresti. Þetta kemur í veg fyrir að það brennur og einnig ristast granólablandan jafnt. Ég einfaldlega tek plötuna úr ofninum og loka honum svo hitinn sleppi ekki út. Svo hræri ég þessu vel saman með sleikju og set aftur inn í ofn og endurtek þetta þar til granólablandan er búin að vera í 40 mínútur í ofninum.

Þegar búið er að rista granólablönduna skal taka hana úr ofninum og bætið trönuberjunum við og hrærið saman. Leyfið blöndunni svo að kólna en við kælingu þá harðnar granóla og verður meira “crunchy”.

Geymið í loftþéttu íláti í allt að viku. Setjið á hafragrautinn, jógúrtið, út á mjólkina eða bara sem snakk eitt og sér!

Ef þið viljið fylgjast betur með mér getið þið fylgt mér á Instagram eða bætt mér við á Snapchat en ég er undir nafninu astaeats

Þangað til næst, verið heil og sæl! 

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Himneska Hollustu og Horizon

Höfundur: Asta Eats 

NÝLEGT