Heimalagað möndlusmjör

Heimalagað möndlusmjör

Heil og sæl! Haustuppskriftirnar hjá mér halda áfram en í þessari viku var ég að leika mér aðeins í eldhúsinu og prófaði að búa til mitt eigið möndlusmjör. Það tók sinn tíma, ég skal alveg viðurkenna það en það er bara svo gaman að búa til sitt eigið svo það er algjörlega þess virði! Ég notaði hlynsíróp og kanil (kemur á óvart…) til að krydda aðeins upp á möndlusmjörið mitt og kom það skemmtilega út! Fyrir þá sem vilja hreint möndlusmjör þá sleppið þið bara sírópinu og kanilnum og þið ráðið hvort að þið setjið salt, persónulega get ég alveg sleppt því. Ég borða möndlusmjör með eplabitum, ofan á maískökur með niðurskornum banana og svo er líka hægt að skella smá möndlusmjöri á ristað brauð eða jafnvel setja það í þeytinginn en möndlusmjör er trefjaríkt og inniheldur gott magn af hollri fitu (e. monounsaturated fat). Ég ætla að vara ykkur við strax í byrjun, heimalagað möndlusmjör reynir á þolimæðina og það verða læti. 

Innihald:

  • 400 grömm af möndlum frá Himneskri Hollustu

Ég bætti við* 

  • 4 msk af hlynsírópi frá Naturata
  • 1 tsk af kanil frá Himneskri Hollustu
  • 1/4 tsk salt 

Aðferð:
Fyrst skal rista möndlurnar inn í ofni í ca. 10-15 mínútur við 150-160°C. Þið dreifið þá möndlunum á plötu með bökunarpappír undir og setjið þær inn í ofn. Ég vill benda á að gott er að fylgjast með möndlunum svo þær brenna ekki.

*Ef þið viljið setja hlynsíróp og kanil í möndlusmjörið þá gerið þið það áður en þið ristið möndlurnar. Þið einfaldlega dreifið sírópinu og kanilnum yfir möndlurnar, hrærið vel í þeim svo að allar möndlur fá á sig síróp og kanil. Dreifið möndlunum svo vandlega yfir bökunarplötuna og ristið.

Þegar búið er að rista möndlurnar skal setja þær heitar í matvinnsluvélina og blanda blanda blanda! Hér kikkar óþolimæðin inn en þetta kemur allt saman á endanum! Þolimæði (og góð matvinnsluvél..) er lykillinn! 

Fyrst verða möndlurnar að grófu mjöli. Þið þurfið stoppa, skrapa meðfram hliðunum og halda áfram að blanda nokkrum sinnum. Olían fer svo smá saman að losna úr möndlunum og verða þá möndlurnar að deigi. Haldið áfram að blanda þar til þið fáið áferð sem ykkur líst vel á. Það er góð regla að blanda alltaf örlítið lengur en þú ætlaðir þér, 2-3 mínútum lengur. 

Geymið möndlusmjörið í lokaðri krukku eða loftþéttu íláti. Það er hægt að geyma möndlusmjörið inn í ísskáp eða einfaldlega upp í skáp, á dimmum stað. Möndlusmjörið endist í einhverja mánuði, þó mæli ég með að klára það innan 4-5 vikna upp á bragðið. 

Ef þið viljið fylgjast betur með mér getið þið fylgt mér á Instagram eða bætt mér við á Snapchat en ég er undir nafninu astaeats

Þangað til næst, verið heil og sæl! 

Höfundur: Asta Eats

NÝLEGT