Hildur Sif: Sykurlaust granóla

Hildur Sif: Sykurlaust granóla

Innihald

4 bollar fínir hafrar frá Himneskri Hollustu
1 bolli þurrkaðir bananar
1 bolli rúsínur
Hálfur bolli kókósflögur
2 tsk kanill
Hálfur bolli Good Good “sykur“
Good Good karamellu dropar
1 bolli möndlumjólk

Sykurlaust-granola1

Aðferð: Hafrar, sykur, kanill, sykur, möndlumjólkin og karamellu dropunum blandað saman í skál og gott er að hafa blönduna smá blauta en ekki svo blauta að úr verði deig. Sett á bökunarplötu með smjörpappír. Eldað á 180 gráðum í 20 mínútur og síðan er restinni bætt við og bakað í 10 mínítur til viðbótar. Leyfið að kólna svo blandað verði stökk. Njótið!

Sykurlaust-granola

Sykurlaust-granola2

Höfundur: Hildur Sif Hauksdóttir

Instagram: hildursifhauks og healthbyhildur

NÝLEGT