Umhverfisvænt
Eindregin trú HiPP á notkun lífrænnar fæðu og sjálfbærni teygir anga sína til umhverfisverndar og verndun framtíðar barna okkar. HiPP er stærsti notandi lífræns hráfæðis á heimsvísu og hlífir þannig gífurlegum flæmum jarðvegs og grunnvatns við áhrifum tilbúins áburðar og skordýraeiturs. Með því að nota HiPP ungbarnamat ertu að stuðla að því að draga úr mengun!
- Allar krukkurnar eru framleiddar með 100% kolefnisjöfnun og nota að lágmarki 50% endurunnið gler.
- Koltvísýringslosun í HiPP verksmiðjum hefur minnkað um u.þ.b. 95% á síðustu fimm árum.
- Hipp notar lífmassa (endurnýtanlega) orku og græna raforku (vatns- og sólarorku) við framleiðsluna (þörf á olíu til orkuframleiðslu hefur minnkað um meira en 90%).
- Með því að bæta einangrun í byggingum fyrirtækisins tókst að spara á einu ári orku til að hita 30 heimili á ári.
- Á aðeins einu ári hefur fyrirtækið dregið úr vatnsneyslu um nær 10%.
- Yfir 96% endurnýting er á úrgangi. Nota má lífrænan úrgang svo sem ávexti, grænmeti og korn í skepnufóður, sem orku í framleiðslu á lífrænu gasi eða sem lífræna moltu á akra.
- Farartækjum verksmiðjunnar hefur meira að segja verið breytt þannig að þau gangi fyrir úrgangsplöntuolíu!
- HiPP er alltaf að reyna að draga úr kolefnisleifum sínum og vann til viðskiptaverðlauna Sameinuðu þjóðanna árið 2000 í þakklætisskyni fyrir framúrskarandi umhverfisvernd.
Ræktunar- og framleiðsluaðferðir HiPP
Fyrsta flokks gæðastjórnun
Alltaf má treysta fyrsta flokks gæðastjórnun HiPP hvar sem er í framleiðsluferlinu, allt frá lífrænni ræktun á ökrum og í aldingörðum í bragðgóðar uppskriftir handa börnum.
Staðsetningin skiptir höfuðmáli
Akrar og aldingarðar þar sem lífrænu innihaldsefnin í HiPP eru ræktuð eru langt frá alfaraleið og iðnaðarsvæðum. Jafnvel er tekið mið af ríkjandi vindátt til að forðast loftmengun. Fræbirgðir verða að vera náttúrulegar og lausar við íðefni (chemicals).
Skiptiræktun
Bændur sem stunda lífræna ræktun halda jarðvegi óskemmdum með því að skipta um uppskeru á tilteknum akri á hverju ári og með því að stuðla að því að ormar, skordýr og aðrar lífverur dafni. Moltu (composted manure) og lífrænum efnum er dreift á akrana til þess að jarðvegurinn fái náttúrulega næringu.
Blátt bann við íðefnum (chemicals)
Ávextir, grænmeti og korntegundir vaxa náttúrulega eins og þeim er ætlað að gera. Enginn skaðlegur, tilbúinn áburður, meindýraeitur eða illgresiseyðir er notaður, engin eiturúðun sem mengar jarðveg og skilur eftir leifar í uppskerunni. Illgresi er fjarlægt með hefðbundnum vélrænum aðferðum og höndunum. Þetta er mikil erfiðisvinna!
Minni mengun
Þar sem ekki eru notuð skaðleg, tilbúin íðefni, draga þeir sem stunda lífræna ræktun úr jarðvegsmengun, bæði á grunnvatni og í fæðukeðjunni.
Þetta byrjar með fuglunum og býflugunum
Við lífræna ræktun er limgerðum haldið við svo og öðrum vistkerfum þar sem náttúran blómstrar og á móti stuðlar þetta að því að halda plágum í skefjum. HiPP er einnig virkt í að örva skordýra- og sniglaætur, svo sem maríubjöllur, broddgelti og söngfugla. Í aldingörðum HiPP er mikið af hreiðurkössum handa fuglunum.
Og vindur í laufi
HiPP ræktendur nota ýmsar hefðbundnar, náttúrulegar aðferðir svo sem félaga plöntun þar sem plöntum er blandað saman til að letja plágur eða vera tálbeitur. Annað dæmi er plöntun á afurðum eins og gulrótum á álagsstaði, þannig að vindurinn sem blæs eftir plönturöðunum stuðli að því að koma í veg fyrir myglu og plágur.
Ávinningur af lífrænt ræktuðu
Betri næring
Lífrænt ræktuð fæða inniheldur að meðaltali meira magn C-vítamíns og lífsnauðsynlegra steinefna eins og kalsíum, magnesíum, járn og króm, sem og verndandi andoxunarefna og ómega-3 fitusýra. Niðurstöður úr stórri rannsókn, sem birt var í lok árs 2007, sýndu að lífrænt ræktaður matur hefur meira næringargildi og getur jafnvel hjálpað til við baráttu gegn krabbameini. Verkefninu stýrði Carlo Leifert, prófessor við Newcastle University í Bretlandi. Í ljós kom að lífrænt ræktaðir ávextir og grænmeti innihéldu allt að 40% meira af andoxunarefnum, sem gæti dregið úr hættu á krabbameini og hjartasjúkdómum. Samkvæmt prófessor Leifert jafngiltu áhrif af neyslu lífrænnar fæðu því að fá einn aukaskammt af ávöxtum og grænmeti dag hvern.
Betra bragð
Að neyta lífrænnar fæðu þýðir að maturinn og innihaldsefnin kitla bragðlaukana án þess að hætta sé á skaðlegu meindýraeitri, nítrötum, vaxtarhormónum eða öðrum óæskilegum aukaefnum.
Betra fyrir umhverfið
Vísbendingar eru um að dýr sem fá lífrænt ræktað fóður hafi tilhneigingu til að vera hraustari en dýr sem fá hefðbundið fóður. Lífrænn búskapur er ekki einungis til hagsbóta fyrir dýrin, heldur einnig fyrir umhverfið. Býli með lífræna ræktun samræmast mun betur áætlunum um náttúru- og landvernd.
HiPP hjálpar til við að vernda framtíð barnsins þíns
- Lífræn vottun.
- Framleitt úr innihaldsefnum sem vaxa náttúrulega og kitla bragðlaukana.
- Allt hráefni ræktað án notkunar meindýraeiturs.
- Engin erfðabreytt hráefni.
- Kjöt af dýrum í hagabeit.
- Framleitt úr hreinu, fersku vatni úr okkar eigin vernduðu uppsprettu.
- Sérhver HiPP lífræn uppskrift fer í gegnum 260 gæðaprófanir.