Hlaupasería FH og Bose

Hlaupasería FH og Bose

Hlaupasería FH og BOSE eru þrjú hlaup sem fara fram í janúar, febrúar og mars. Hlaupin eru jafnframt stigakeppni einstaklinga. Nú þegar hefur verið opnað fyrir skráningu en hægt er að skrá sig í hlaupið með því að smella hér.

Staðsetning og tími

Hlaupin þrjú hefjast á göngustígnum gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu í Hafnarfirði og hefjast hlaupin stundvíslega kl. 19:00 eftirfarandi daga:

  • Fimmtudaginn 23. janúar.
  • Fimmtudaginn 27. febrúar.
  • Fimmtudaginn 26. mars.

Skráning og þátttökugjald

Forskráning er opin til kl. 12.00 á hlaupadegi.

  • Fullorðnir (15 ára og eldri) 1500 kr.
  • Börn (0-14 ára) 1000 kr.

Skráning frá kl. 12.00 til 18.45 á hlaupadegi

  • Fullorðnir (15 ára og eldri) 2000 kr.
  • Börn (0-14 ára) 1500 kr.

Fyrstu 100 þátttakendur sem skrá sig í hvert hlaup fá glæsilega hlaupahúfu frá Macron og eiga auk þess möguleika á að vinna Bose Soundsport free heyrnartól, hlaupaskó frá Fimbul.is og hlaupabók Arnars Péturs.

Tímataka

Tímatökuflögur verða afhentar í íþróttahúsinu á Strandgötu á hlaupadegi milli kl.17:30 – 18:45. Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að virða þau tímamörk. Án flögu fæst enginn tími og flagan virkar eingöngu sé hún fest við ökkla. Skila þarf flögum eftir hlaup. Flögutími gefur nákvæman árangur þátttakenda óháð því hve aftarlega hann er við ræsingu. Markklukka verður í rásmarki.
Hraðastjórar verða í boði en þeir munu hlaupa á 20 mín, 25 mín og 30 mín.

Hlaupaleiðin

Hlaupið er frá upphafspunkti (stígur gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu), eftir göngustígnum meðfram strandlengju Hafnarfjarðar til norðurs áfram Herjólfsbraut, beygt til vinstri inn Boðahlein og þaðan aftur inná Herjólfsbraut og tilbaka sömu leið. Leiðin er nokkuð flöt og ákjósanleg til bætinga.
Partur af hlaupaleiðinni er á götu og eru þátttakendur beðnir um að taka tillit til þess og sýna varúð. Brautargæsla verður á hlaupaleiðinni og við gatnamót þar sem að lokað verður fyrir umferð.
1 km, 2 km, 3 km og 4 km keilur verða staðsettar á hlaupaleið.
Hlaupaleiðin er mæld af löggildum mælingamönnum.
Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér hlaupaleiðina vel, enda er breyting á henni frá fyrri árum. Sjá kort

Aldursflokkar

Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum karla og kvenna;

  • 14 ára og yngri
  • 15-29 ára
  • 30-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60-69 ára
  • 70 ára og eldri

Stigakeppni

  • 1.sæti gefur 15 stig
  • 2.sæti gefur 14 stig
  • 3.sæti gefur 13 stig
  • …….
  • 13.sæti gefur 3 stig
  • 14.sæti gefur 2 stig
  • 15.sæti gefur 1 stig

Samanlagður stigafjöldi í heildarúrslitum og aldursflokkum í öllum hlaupunum þremur gildir. Séu þátttakendur jafnir að stigum eftir þrjú hlaup eru það úrslit í síðasta hlaupi (26. mars) sem sker úr um sætaröðun í stigakeppninni.

Úrslit

Öll úrslit, ásamt stöðu í stigakeppninni, verða birt á timataka.net og á Facebook síðu Hlaupaseríu FH og BOSE eins fljótt og kostur er.

Verðlaun og lokahóf

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í karla og kvennaflokki óháð aldursflokki eftir hvert hlaup. Verðlaunaafhendingin fer fram í íþróttahúsinu á Strandgötu strax að loknu hlaupi.
Verðlaunaafhending fyrir hlaupaseríuna fer fram á lokahófi sem haldið verður í Kaplakrika (dags. auglýst síðar).Þar verða heildarsigurvegarar fyrir hlauparöðina í karla- og kvennaflokki verðlaunaðir fyrir samanlagðan árangur í öllum þremur hlaupunum, auk þess sem veittir verða verðlaunapeningar fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum aldursflokki karla og kvenna.
Einnig verða dregin út glæsileg útdráttarverðlaun þar sem möguleikarnir fara eftir fjölda hlaupa þátttakanda;

  • Þrjú hlaup = þrefaldar vinningslíkur
  • Tvö hlaup = tvöfaldar vinningslíkur
  • Eitt hlaup = einfaldar vinningslíkur

Frekari upplýsingar

Það er hægt að fylgjast með hlaupinu á Facebook síðu hlaupsins: https://www.facebook.com/fhkeppni/ .
Þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu í Suðurbæjarlaug (Hringbraut 77).

NÝLEGT