Hollar hafrabollur

Hollar hafrabollur

Nýbakaðar hafrabollur með góðu áleggi er hin besta næring fyrir stóra sem og smáa og hentar einstaklega vel í nestisboxin. Linda Ben á heiðurinn á þessum dásamlegu bollum. Þær eru bæði einfaldar og afar bragðgóðar.

  • 500 ml volgt vatn
  • 12 g ger
  • 1 tsk hunang frá Muna
  • 1 msk ólífu olía frá Muna
  • 1 tsk salt
  • 200 g grófir hafrar frá Muna + örlítið meira til að skreyta bollurnar
  • 1 dl hörfræ
  • 400 g gróft spelt frá Muna
  • 1 egg

Aðferð:

  1. Setjið vatn í stóra skál ásamt gerinu og hrærið saman.
  2. Bætið út í skálina hunangi, ólífu olíu og salti, hrærið saman.
  3. Bætið þá út í höfrum og hörfræjum út í, hrærið. Bætið því næst speltinu út í, hnoðið öllu vel saman. Leyfið deiginu að hefast á volgum stað í 30 mín.
  4. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
  5. Skiptið deiginu upp í bollur, ég notaði stóra salatskeið, og setjið á smjörpappírsklædda ofnplötu.
  6. Hrærið eggið saman í skál og penslið því svo yfir bollurnar, skreytið bollurnar með haframjöli.
  7. Bakið í u.þ.b. 30 mín eða þar til þær eru byrjaðar að taka á sig gylltan lit og eru bakaðar í gegn.

    www.lindaben.is


NÝLEGT