Hollir hafraklattar í millimál

Hollir hafraklattar í millimál

Hollir hafraklattar eru snilld sem millimál og það tekur enga stund að búa þá til. Þegar ég geri hafraklatta tekur það mig bara um 5 mínútur að malla öllu saman og svo skelli ég þessu bara inn í ofn. Það sem er svo skemmtilegt við að baka sér hafraklatta í millimál er að maður getur alltaf verið að breyta uppskiftinni og prófa eitthvað nýtt, þá fær maður heldur ekki leið á þeim.

Uppskiftin sem ég nota fyrir hafraklatta er mjög einföld og það er ekkert mál að skipta einhverju sem maður á ekki til eða vill ekki hafa í sínum klöttum út fyrir eitthvað annað. Ég ætla að deila með ykkur uppskiftinni og aðferð hér fyrir neðan.

Uppskrift:

-2 egg 
-2 bananar 
-130 gr haframjöl (50 gr grófir 70 gr fínir)
-1 skeið súkkulaði prótein
-8-10 döðlur (saxaðar)
-Kanill (eftir smekk)
-Vanilla (duft eða dropar, eftir smekk)
-Hnetusmjör (eftir smekk)
-1 tsk lyftiduft
-1/2 dl létt AB mjólk

Aðferð:

1. Stappa saman banana og eggjum.
2. Setja hafrana útí.
3. Setja próteinið útí og hræra vel .
4. Kanill, lyftiduft, vanilla og hnetusmjör sett útí og blandað vel saman.
5. AB mjók og döðlur sett útí.
6. Baka í 18 mín á 180 gráðum.

Þessi uppskrift er bara grunnurinn og svo er hægt að bæta því sem maður vill útí. Um daginn prófaði ég að skera próteinstykki í bita og setja úti og mér fannst það heppnast mjög vel.

Ég geri klattana mjög stóra svo að 1-2 klattar séu alveg nóg sem millimál en það er líka snilld að fá sér þá í morgunmat. Mæli með því að hita þá smá og borða með kaldri mjólk, það er alveg klikkaðslega gott. 

Höfundur: Kristín Kristinsdóttir

NÝLEGT