Hollt nesti í ferðalagið & orkubita uppskrift

Hollt nesti í ferðalagið & orkubita uppskrift

Þar sem ég er talin vera nestisperri með meiru af þeim sem til mín þekkja þá er það löngu liðin tíð að ég þurfi að treysta á misgott úrval í sjoppum landsins og ferðast nú til dags vel birgð af ýmsu hollustu nestisgúrmí á ferðum mínum innanlands sem utan. Það er sem betur fer þannig í dag að úrval af hollum millibitum hefur stóraukist og því mun auðveldara að verða sér úti um hollari valkosti. Ég ætla að deila með ykkur nokkrum hugmyndum að nesti sem þið getið keypt tilbúið í næstu matvörubúð og einnig gefa ykkur uppskrift að næringaríkum og gómsætum orkubitum, en ég hef notað þessa uppskrift mikið síðan að börnin voru lítil og þeir metta vel og því tilvalið að taka þá með í ferðalagið og útileiguna! Líka upplagt að taka orkubitana með sem nesti í vinnuna.

Hugmyndir að sniðugu nesti og snarli í fríið, skólann eða vinnuna…

Nakd bar, seaweed snakk, ristaðar baunir frá Brave, maískökur, Trek próteinstykki, Protein ball kúlur, kókósbiti og kasjúhnetur. Bráðsnjallt að grípa svona ´on the go´nesti með sér á hraðferð og einfalda daginn þegar kemur að því að næra mannskapinn á ferð og flugi!

Millimal-hollt

Orkubitar með súkkulaði

4 b haframjöl

1 b sesamfræ

½ b sólblómafræ

1 b kókósmjöl

½ b gróft spelt

½ b valhnetur

1 ½ b kókósolía

1 tsk vanilluextract

1 b möndlumjólk

½ b saxað súkklaði

½ b lífræn trönuber

1 b hlynsíróp

6 egg

Hitið ofnin í 170-180°C. Smyrjið ofnskúffu. Blandið þurrefnum saman í skál og vökva í aðra skál. Blandið síðan öllu vel saman, hellið í ofnskúffu og bakið í 30-45 mín (ferð eftir ofnum, fylgist með þar til brúnast vel), ég setti á blástur síðustu 10 mín. Skerið síðan kökuna í litla ferninga. 

67314459_390933448220024_3072069267923927040_n

Það má alveg bræða smá súkkulaði yfir ef viljið. Þið getið notað hunang í staðinn fyrir hlynsíróp og notað rúsínur í staðinn fyrir bæði trönuber og súkkulaði eftir því hvað þið eigið til í skápunum en ég hef oft notað bara rúsínur. Passið upp á að nota lífræn trönuber því þessi venjulegu eru full af sykri en ég nota alltaf trönuberin frá Horizon sem er bæði mjúk og flott gæði. Mæli með að nota 70-80% lífrænt súkkulaði en ég notaði 80% súkkulaði frá Chocolate & Love sem er mitt allra besta uppáhalds súkkulaði (tips: þið getið sleppt trönuberjum alveg og notað meir af súkkulaði í staðinn, 1 b total saxað súkkulaði). Geymist í kæli í 5-7 daga og gott að skutla í frystirinn til að grípa í seinna.

67161356_586647388409467_7133243429370200064_n

Ég nota eins mikið lífrænt og get í mínu mataræði og uppskriftum og enda mun betri gæði, næringarinnihald og ríkara bragð af lífrænum vörum og fæðu. Þessir orkubitar eru fullir af góðum trefjum, fitu, próteini og næringarefnum og gefa góða orku. Njótið!

67702753_495657564519760_5922311261785161728_n

Ásdís grasalæknir

www.facebook.com

www.grasalaeknir.is

www.instagram.com/asdisgrasa

NÝLEGT