Fjallastelpurnar Anna Kristín Sigurpálsdóttir og Helga Finnsdóttir efna til fjallgönguraðar í sumar í samstarfi við Houdini á Íslandi og H Verslun.
Anna og Helga eru alvanar fjallageitur og hafa nú þegar leitt hópa í tvær Houdini göngur í sumar.
Þriðja gangan verður farin fimmtudaginn 12. ágúst næstkomandi og gengið verður á Móskarðshnjúka við Esju. Við hvetjum við alla lesendur H Magasín að skella sér með.


Anna hefur verið upp um öll fjöll síðan hún byrjaði í skátunum 12 ára. Hún elskar að þvælast, brasa og ferðast um landið hvort sem það er gangandi, hjólandi, akandi, hlaupandi eða skíðandi. Undanfarin ár hafa fjallaskíðin og fjallahjólið átt allan hennar hug enda algjörlega fullkomin blanda af sumar og vetraríþróttum. Svo finnst henni best þegar hún nær að draga börnin sín þrjú með sér í ævintýraleiðangra.


Helga hefur að eigin sögn verið á fjöllum frá blautu barnsbeini og veit fátt betra. Hún á mann, 3 börn, 3 hunda og einn kött. Helga hefur mikla reynslu af fjallgöngum og eru þær hennar helsta ástríða. Hinsvegar gleymdist alveg að setja í hana keppniskubbinn svo hún er í þessu til að njóta.
Móskarðshnjúkar
Gengið verður á Móskarðshnjúka og hentar gangan flestum, athugið að þessi ganga er þó heldur erfiðari en hin hefðbundna Esjuganga og mæla stelpurnar með að hafa göngustafi meðferðis. Hækkunin er um 660m og hæsta hæð göngu er um 807m. Heildartími göngunnar er um 4 tímar og vegalengdin um 6,3km.
Stelpurnar munu hitta hópinn kl. 17:30 á bílastæðinu við Svínaskarðsleið í Mosfellsdal, hnitin eru eftirfarandi (64°13’23.2”N 21°33’07.1”W). Ekið inn Mosfellsdal og beygt til vinstri eftir Gljúfrastein. Gengið verður af stað kl: 18:00 stundvíslega.
Gangan er í boði Houdini og er því að kostnaðarlausu. Allir sem taka þátt fá glaðning að göngu lokinni. Þátttakendur sem skrá sig og taka þátt fara í pott og dregnir verða út vinningar frá Houdini að göngu lokinni.
Allar nánari upplýsingar má finna á Facebook síðu Houdini Sportswear Iceland
Skráning fer fram á þessari vefslóð, smella hér!
Hlökkum til að sjá sem flesta á fimmtudaginn
Anna, Helga, Houdini á Íslandi og H Verslun.
Þú færð allt sem þú þarft fyrir gönguna og útivistina í H Verslun.