Hver elskar ekki að fá sér góða súpu í kuldanum? Súpur eru alltaf svo góðar og ljúft er að gera svolítið magn af þeim því þá á maður alltaf. Oft finnst mér þær jafnvel bragðbetri daginn eftir. Til þess að auðvelda mér eldamennskuna geri ég oft súpuna kvöldið áður, þá þarf ég ekki annað en að hita súpuna og eiga gott brauð með. Matartíminn verður ekki einfaldari.. Þessi súpa er svo góð að ég gæti borðað endalaust af henni.
Uppskrift:
2-2,5 lítrar af vatni
1-2 kjúklinga eða grænmetiskraftur
1-2 msk olía
1-1/2 msk karrý
1 hvítlaukur
1 blaðlaukur
1/2 rauð paprika
1/2 græn paprika
5-6 gulrætur
1 lítið blómkálshöfuð
1 lítið broccolihöfuð
1 flaska chilli sósa
400gr rjómaostur
1 peli af rjóma
Salt og pipar
Cayenne pipar
Vatn, chillisósa, rjómaostur, rjómi og kraftur settur í pott.
Hrært vel í á meðan suðan kemur upp.
Grænmetið skorið og sett ofaní potinn.
Leyfi þessu svo að malla á hita 5/6 í smá tíma þar til grænmetið er orðið soðið
Ég smakka hana svo til og nota salt/pipar/cayenne pipar eftir smekk
Verði ykkur að góðu!
Höfundur: Telma Rut