Hvað er hollt? Hvað er ekki hollt?

Hvað er hollt? Hvað er ekki hollt?

Hvað má ég borða?
Hvað má ég ekki borða?
Hvað er fitandi?
Hvað er ofurfæða?
Ertu ruglaður í skallanum innan um öll skilaboðin?
Ráfandi um heilsurekkana í örvæntingu.
Áttavilltur um hvað bætir heilsuna. 

Örvæntu eigi… því hjálpin er innan seilingar.

Ragnhildur Þórðardóttir, heilsusálfræðingur, og Ásdís Ragna Einarsdóttir, grasalæknir, leiða þig í gegnum frumskóg heilsuvara og bætiefna á þessu stórskemmtilega kvöldi 

Allir eru velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.

Frítt inn.

Hvernig er hægt á einfaldan hátt að kúpla inn hollari matvöru og bættum matarvenjum án þess að þurfa doktorsgráðu, og tapa glórunni í misvísandi skilaboðum miðlanna.

Eftir kvöldið ertu vopnaður þekkingu og sjálfstrausti fyrir næstu bæjarferð og pillar úr heilsuhillunum þær vörur sem bæta þína heilsu og styðja við þín gildi og markmið. 

Allir fá gjafapoka með heilsustöffi frá NOW, Himnesk hollusta, og fleiri skemmtilegum framleiðendum.

Alls konar gómsætt heilsusmakk verður í boði fyrir maga og munna og bara gleði, gleði, gleði!

Enginn aðgangseyrir.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Konur og kallar. 

Höfundar:  Ragga Nagli og Ásdís Grasa

NÝLEGT