Hvernig má forðast smit vegna Covid-19

Hvernig má forðast smit vegna Covid-19

Embætti landlæknis hefur nú gefið út leiðbeiningar um hvernig megi forast smit vegna Covid-19 veirunnar. Gott er að tileinka sér þessi ráð heilsunnar vegna og til þess að hefta frekar útbreiðslu veirunnar í samfélaginu.

Ráðin, samkvæmt embætti landlæknis, má finna hér að neðan:

  • Þvoðu hendur þínar reglulega með vatni og sápu, minnst 20 sekúndur í hvert skipti.
  • Ef vatn og sápa eru utan seilingar er gott að nota handspritt, til dæmis þegar þú hefur notað greiðslukort eða komið við fleti sem margir snerta, svo sem hurðarhúna. Á vef landlæknis eru góðar upplýsingar um hvernig gæta má varúðar gegn sýkingum. 
  • Ef þú þarft að hósta eða hnerra skaltu nota olnbogabótina eða einnota klúta. Þannig kemurðu í veg fyrir að úði fari á hendur. Gættu þess að hósta eða hnerra ekki á aðra.
  • Takmarkaðu náin samskipti við annað fólk, t.d. handabönd og faðmlög. Finndu aðrar leiðir til þess að heilsa, sem ekki fela í sér snertingu.
  • Reyndu að bera ekki hendur upp að andlitinu, sérstaklega augum, nefi og munni.
  • Þrífðu oftar fleti sem eru mikið notaðir.
  • Ef þú ert eldri borgari eða með ákveðna undirliggjandi sjúkdóma er ráðlagt að halda sig fjarri mannamótum og fjöldasamkomum.
  • Forðastu að umgangast fólk sem er með einkenni sem minna á flensu.

NÝLEGT