Mamabear <3
Gunnar Ingi bróðir minn. Hann er í sérnámi í munn- og kjálkaskurðlækningum og að taka doktor samhliða en hann vinnur á spítala í Danmörku. Hann er bestur!
Ég keypti mér vikupassa í Fitness World á 1.700 kall og vá hvað það er geðveikt að æfa í þessum stöðvum. Það er bókstaflega ALLT í boði. Stöðin sem við æfðum í er risastór og á nokkrum hæðum. Við vorum mest á Crossfit svæði sem var neðst niðri og þar var allt á milli himins og jarðar eins og trapbar, stangir, lóð, ketilbjöllur, róðravélar, assault bike, dekk, sleðar og bara you name it. Algjört himnaríki! Við tókum 4 æfingar en ég tók tvær upp og setti á Instagram.
Mmm Aarhus Street Food – sú veisla!
Það er virkilega auðvelt að finna sér eitthvað fallegt í Árósum. Ég verslaði mest í & Other Stories en svo fékk ég mér mjög fallega úlpu/jakka í Bestseller búðinni frá Vero Moda, grænan samfesting í Monki, dökkbláar buxur með silfurröndum í H&M, pleður pils og eitthvað meira fallegt. Síðan fékk ég mér Airmax 97 strigaskó í ljósbláum lit sem ég er sjúk í.
Þar til næst!
Instagram: @indianajohanns