Ketó gulrótarkaka

Ketó gulrótarkaka

Ketó uppskriftirnar frá Kristu klikka seint og því tilvalið að svala sætindaþörfinni með ótrúlega gómsætri ketó-vænni gulrótarköku.

Innihald – botn

  • 100 g kúrbítur með hýðinu
  • 60 g Macadamiuhnetur frá NOW
  • 2 egg
  • 2 msk kókosolía mjúk
  • 1 tsk kardemommudropar
  • 100 ml möndlumjólk ósæt
  • 180 g möndlumjöl frá NOW
  • 120 g sæta frá Good good, Sweet sweetness
  • 1 tsk vínsteinslyftiduft
  • 1/2 tsk gróft salt
  • 2 tsk kanell
  • 1/2 tsk engifer duft eða maukaður í krukku
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1/4 tsk negull
  • 1 tsk sítrónusafi

Aðferð – botn

Rífið kúrbítinn niður með rifjárni eða notið matvinnsluvél.

Saxið hnetur og blandið saman.Bætið öðru hráefni við í kökuna og hrærið vel saman.

Bakið í spreyjuðu formi eða silikonformi í 30 mín á 170° hita. Ef þið tvöfaldið uppskrift þá notið þið tvö form.

Krem – Innihald

  • 200 g rjómaostur
  • 200 g smjör
  • 100 g sæta frá Good good, fínmalið
  • 1 msk sítrónusafi
  • 2 tsk vanilludropar

Aðferð – krem

Fínmalið sætuna í blandara svo hún líkist flórsykri.

Blandið saman smjöri við stofuhita og rjómaosti, bætið sætunni við, sítrónusafa og vanilludropum og þeytið. Gott að nota K-spaða í hrærivél ef þið eigið.

Ef krem skilur sig þá er það annaðhvort of heitt eða kalt. Ef það kurlast upp og nær ekki að blandast saman þá er hægt að fara með hárblásara á skálina og mýkja upp.

Ef það er á floti og smjörið orðið fljótandi þá má setja ískalt blautt viskastykki utan um að kæla skálina niður á meðan hún þeytir. Það er alltaf hægt að bjarga smjörkremi.

Skreytið kælda kökuna með kreminu og fyrir þá sem vilja þá er hægt að lita hluta af smjörkreminu með grænu og appelsínu lit og sprauta gulrótum á kökuna eða búa til marsipan sem er í uppskrift hér

NÝLEGT