3 kjúklingabringur
1 krukka basil pestó (heimagert eða tilbúið)
Konfekt tómatar
Spínat
Fersk basilika
Rauðlaukur
Mangó (hef það stundum með eða jarðarber)
Avókadó (má sleppa)
Ferskur mozzarella
Parmesanostur (rifinn)
Ólífuolía frá Himneskri Hollustu
Balsamic síróp
Salt og pipar
(Allt eftir smekk og hve margir eru að borða)
Skerið kjúklinginn í litla bita og veltið þeim upp úr helmingnum af pestó-inu. Steikið á pönnu upp úr smá olíu þangað til að þeir eru steiktir í gegn. Látið kólna á meðan þið eruð að skera niður grænmetið í salatið. Raðið síðan öllu í fallega skál, salatið fyrst, síðan ferska basilikan, svo tómatana, mozzarellaostinn, parmesanostinn, kjúklinginn og avókadóið.
Að lokum er svo gott að dreifa smá ólífuolíu og balsamik sírópi yfir og krydda eftir smekk. Gott er að dreifa svo restinni af pestó-inu yfir allt og bera fram með góðu ítölsku brauði.
Þið gætuð líka í staðinn fyrir að dreifa afganginum að pestó-inu yfir salatið að blanda því saman við sýrðan rjóma og þá eruð þið komin með létta salatdressingu yfir salatið.
Höfundur: Lólý