Himneskur kjúklingur frá Ebbu. Ert þú að fara að halda matarboð og vantar eitthvað auðvelt og gott? Þá mælum við með þessum holla kjúklingarétti frá Ebbu.
Innihald:
2 kjúklingabringur
1-2 msk sítrónuólífuolía
1-2 msk basilólífuolía
1 tsk hunang
2-3 hvítlauksrif, pressuð
1-2 msk sítrónusafi eða límónusafi
Sjávarsalt og pipar eftir smekk
Aðferð:
Best finnst mér að blanda marineringunni saman í glas/krukku. Setjið svo kjúklingabringurnar í poka, hellið marineringunni yfir og nuddið öllu vel saman. Látið bíða í um 1-2 klst. á borðinu. Hitið grillið vel og lækkið svo hitann, grillið kjúklingabringurnar í um 20-25 mínútur og snúið þeim við a.m.k. þrisvar sinnum á meðan.

