Höfundur: Ragga Nagli
Síðasta kvöldmáltíð Naglans í lífinu verður súkkulaðikaka með rjóma.
Ef valið stæði milli heimsfriðarins og að geta borðað súkkulaðiköku í öll mál alla daga án þess að fitna þyrfti Naglinn alvarlega að hugsa sig um. Innri sykursnúðurinn hamast daglega og vill fixið sitt en hann er friðþægður með stöðugum blekkingum í formi hollustugúrmetis.
Nýjast af nálinni í þeim geira er klísturskakan. Súkkulaðikaka úr prótíndufti sem tekur 3 mínútur og innan við 150 kcal í kvikindinu. Viljið þið ræða þessa uppgötvun?
Ef eitthvað á að fá Nóbelinn þá er það þessi dásemd.
Klísturskaka
1 skammtur
1 skófla casein prótín eða skófla af plant protein complex súkkulaði prótíni frá Now
1 eggjahvíta
3 tsk kókoshnetuhveiti
2 tsk ósætað kakó t.d. Himnesk hollusta
1/2 tsk lyftiduft
vatn
1. Blanda öllu saman í skál og bæta vatni þar til deigið verður að þykkum massa.
2. Setja plastfilmu yfir skálina
3. Inn í örbylgju í 3 mínútur eða þar til kakan hefur losnað frá brúnunum 4. Hvolfa á disk og njóta með prótínflöffi eða horuðum sprauturjóma til hátíðarbrigða

