Lífræn heimilisþrif án aukaefna

Lífræn heimilisþrif án aukaefna

Hreinlætisvörur ættu ekki að innihalda nein óæskileg efni. Margar hreinlætisvörur innihalda skaðleg efni sem við öndum að okkur og eru oft skaðleg fyrir umhverfið og okkur sjálf. Góðar hreinlætisvörur þurfa ekki lengur að innihalda sterk kemísk efni til að gefa þá virkni sem við sækjumst eftir.

Undanfarin ár hefur átt sér stað mikil þróun á hreinlætisvörum úr náttúrulegum efnum sem gefa góða virkni og eru skaðlaus umhverfinu og niðurbrjótanleg í náttúrunni. Þýska fjölskyldufyrirtækið Sonett er með þeim fremstu á þessu sviði og eru eingöngu með vottaðar mildar sápur og hreinsiefni. Þær brotna 100% niður í náttúrunni ásamt því að vernda náttúrulegar vatnsauðlindir sem eru undirstaða lífsins. Hráefnin eru unnin úr jurtum og steinefnum og innihalda engin ensím. Þau hafa gríðarlega góða virkni en eru einnig mild fyrir húðina. Ekki skemmir fyrir að þau eru með dásamlegum ferskum náttúrulegum ilm sem kemur úr ilmkjarnaolíum í stað kemískra ilmefna. Sonett hefur það að leiðarljósi að bjóða upp á öflugar hreinsivörur með góða virkni en vera samtímis 100% umhverfisvænt og umhyggjusamt gagnvart náttúrunni. Fyrirtækið er með allar bestu mögulegu vottanir sem hægt er að fá á hreinlætisvörur. Sonett hefur verið brautryðjandi í þvotta- og hreinsiefnum úr lífrænum hráefnum frá árinu 1977.

Lífræn heimilisþrif með náttúrulegum ilmi úr ilmkjarnaolíum

Sonett framleiðir náttúrulegar ECO vottaðar hreinsivörur sem unnar eru úr lífrænum og demeter vottuðum jurta hráefnum. Allar vörurnar brotna 100% niður í náttúrunni og eru með lífræn innihaldsefni, þær vernda náttúrulegar vatnsauðlindir og eru flestar vegan. Sonett inniheldur náttúrulegar ilmkjarnaolíur sem eru sjaldan ofnæmisvaldandi og eru frá vottaðri lífrænni ræktun.

Eftirfarandi atriði eiga við um Sonett hreingerningavörurnar:

Góð og öflug hreinsiefni

• Náttúruleg, unnin úr plöntuhráefnum

• Brotna fullkomlega (100%) niður í náttúrunni

• Innihalda samþjöppuð efni sem eru drjúg í notkun

• Sérlega mildar vörur fyrir húðina

• Án tilbúinna rotvarnarefna og ensíma

• Án tilbúinna ilmefna

• Án tilbúinna litarefna

Henta alls staðar, líka þar sem er rotþró

Þvottaefni með eða án ilms sem eru án ensíma og virka því vel fyrir öll hitastig og alla liti af fötum. Einn brúsi fyrir allan þvott. Breið vörulína Í Sonett línunni finnur þú allar þær hreinlætisvörur sem að þú þarft fyrir heimilið, vinnustaðinn eða sumarbústaðinn, má þar nefna alhreinsi, sótthreinsisprey, blettasápur, handsápur, gólfsápur, glerúða, uppþvottalög, uppþvottatöflur, uppþvottaduft, baðherbergishreinsi, þvottaefni fljótandi og í duftformi og salernishreinsi. Vörurnar henta öllum sem vilja gera hreingerninguna skemmtilegri með dásamlegum ilmolíum.

Betri samviska

Hefur þú íhugað hverju þú ert að skola út í umhverfið með hreingerningarefnum, eða hverju þú ert að anda að þér á meðan þú þrífur? Breyttu hreingerningunni þinni í umhverfisvernd með því að velja umhverfisvænar hreinsivörur. Veldu betri kost fyrir þig, fjölskylduna og umhverfið.

Fylgstu með Sonett hér.

NÝLEGT