Föstudagar eru pizzadagar á mörgum heimilum & tilvalið tækifæri fyrir fjölskylduna að eiga góða stund saman. Margir mikla fyrir sér að útbúa sitt eigið pizzadeig en það er í raun eitt af því einfaldasta sem hægt er að gera í eldhúsinu.
Í venjulegt gómsætt pizzadeig þarf einungis 5 innihalds efni & þú færð margfalt betra deig heldur en það sem þú færð út í búð. Það er því tilvalið að henda saman deigi og leyfa því að hefast á meðan fjölskyldan undirbýr saman það sem á að fara ofan á hana. Hver og einn getur svo raðað á sína pizzu því sem hann elskar.
Á mínu heimili eru alltaf gerðir tveir mismunandi pizzabotnar svo allir fái það sem þeir elska, það er gerð hin klassíska heilhveitipizza & svo spínat pizza. Hvort tveggja er einfalt og tekur enga stund. Ofan á þessa botna er svo hægt að setja allt milli himins og jarðar. Gott er að byrja eldamennskuna á að gera heilhveiti pizza botninn og leyfa honum svo að hefast á meðan þú græjar rest.


Ég ætla að deila með ykkur uppskrift af þessum tveim mismunandi botnum ásamt mildri pizzasósu sem er eins og þær sem maður fær á ítalíu. Það sem er svo frábært við að útbúa þetta tvennt sjálfur, sósu og botn, er að við sleppum við alls kyns efni sem annars eru sett út í bæði sósur og botna sem fást út í búð til þess að láta það endast lengi og líta vel út.
Við vitum nákvæmlega hvað er í því sem við útbúum sjálf og með því að nota hágæða lífræn innihalds efni erum við að næra kroppinn okkar eins vel og við mögulega getum. Ég prufa oft að bæta einhverju nýju við á mínar pizzur en það sem er alltaf á þeim í grunnin er sósan hér að neðan, rifinn ostur, rjómaostur, mjúkar döðlur frá Himneskri Hollustu, kirsuberjatómatar & svo rucola sem ég set eftir að hún hefur verið bökuð. Svo finnst mér guðdómlegt að setja muldar wasabi hnetur, pekan hnetur og fleira. Þetta er svo allt toppað með hvítlauksolíunni sem er uppskrift af hér að neðan.
Heilhveiti Pizza Botn – Einn stór botn
- 2 ½ dl volgt vatn
- 2 tsk þurrger
- 2 msk olífuolía frá Himneskri Hollustu
- 400 gr heilhveiti frá Himneskri Hollustu
Setjið volgt vatn í skál og hellið þurrgerinu út í. Hrærið í og leyfið gerinu að leysast upp. Setjið heilhveiti og olífuolíu í skál og bætið vatninu með þurrgerinu hægt og rólega í og hærrið á milli. Þú gætir þurft aðeins minna eða aðeins meira vatn eftir því hvernig deigið er. Við viljum ekki hafa það of klístrað og ekki of þurrt. Þegar þetta hefur allt verið hnoðað saman er gott að setja rakan klút yfir skálina og leyfa því að standa á meðan þú undirbýrð það sem á að fara ofan á hana. Þegar búið er að raða því á pizzuna sem á að fara á hana er hún bökuð við 230 gráður í 8 – 10 mín.
Spínat Pizza Botn – Botn sem hentar fyrir einn
- 60 gr spínat
- 2 Egg
- 1 dl ostur
- 1 msk möndlumjöl


Setjið öll innihaldsefni í matvinnsluvél, blender eða í skál ef þið viljið nota töfrasprota. Það þarf að blanda þessu saman þar til þetta verður að smooth vökva með einhverjum af þessum þrem tækjum sem ég nefndi að ofan. Ég nota alltaf blender en það er hægt að nota hin líka. Hafið ofninn á 235 gráðum og takið til bökunarpappír. Setjið hann á heita bökunarplötu. Hellið deiginu á bökunarpappírinn og dreyfið út í hring. Setjið þetta ofarlega í ofninn og bakið í sirka 6 mínútur. Passið að fylgjast vel með þar sem ofnar geta verið mismunandi. Það munu koma loftbólur í botninn sem er einmitt eins og hann á að vera. Við viljum baka hann þannig að hann sé rétt farinn að brúnast hér og þar. Þá tökum við hann út og setjum sósu og það sem við elskum ofan á hann & bökum svo aftur þar til osturinn er farinn að brúnast létt. Þá er spínat pizzan þín orðin tilbúin & fullkomin.
Pizza sósa
- 1 askja litlir tómatar
- 1 krukka tómatpúrra frá Himneskri Hollustu
- Salt & Pipar
Setjið þetta allt saman í blender, matvinnsluvél eða notið töfrasprota til þess að fá þetta mjúkt og kekkjalaust eins og við viljum hafa góða sósu.
Hvítlauksolía
- 2 Hvítlauksrif
- ½ dl ólífuolía frá Himneskri hollustu
- ¼ tsk salt
Kreistið hvítlauksrif og setjið allt þrennt saman í litla skál. Þessu er skvett yfir pizzuna eftir að hún er tekin úr ofninum.
Höfundur: Íris Kjartansdóttir