Mokka næturgrautur Röggu Nagla

Mokka næturgrautur Röggu Nagla

Þessi mokka næturgrautur er frábær fyrir kaffiafganginn úr könnunni. Þessi síðasta ískalda svarta lögg sem lúrir einmana í botninum enginn hefur lyst á og endar alltaf í vaskinum. Þannig stuðlarðu ekki einungis að hollustu, heldur einnig minni matarsóun.

2 dl Himnesk Hollusta haframjöl
4 dl ósætuð möndlumjólk (bleik Isola)
2 msk NOW Psyllium Husk
2 msk chia fræ
1/2 bolli lagað svart kaffi
4 msk ósætað kakóduft (t.d Hershey’s)
4 tsk Rain Forest kakónibbur
5-6 dropar Better Stevia English toffee Now

Settu öll innihaldsefnin í gamla sultukrukku og lokaðu og geymdu í kæli yfir nóttu. Þá er það eina sem þú þarft að gera um morguninn er að velta þér framúr vopnaður skeið og njóta með núvitund hverrar skeiðar. Því þú vilt aldrei að þessi máltíð taki enda.

Verði ykkur að góðu

Ragga Nagli

Hér má finna fleiri gómsætar uppskriftir og áhugaverða pistla eftir Naglann.

NÝLEGT