Grautur mánaðarins á H bar að þessu sinni er Hamingjugrauturinn sem þær Eva Mattadóttir og Sylvía Briem í Norminu hönnuðu sérstaklega út frá gildum sínum og áherslum þegar kemur að næringu og almennri vellíðan. „Við hönnuðum grautinn með margt í huga. Við vildum að hann yrði næringaríkur en samt eins og djúsí eftirréttur. Þessi grautur er allt; krönsí, saltur, sætur, mjúkur og hollur. Dekrar við alla bragðlaukana. Hann inniheldur líka góð prótein, holla fitu, andoxunarefni og mega 3 og 6 olíu. Njóttu þess að fylla sál og líkama af hreinni orku sem endist allan daginn.“


Hamingjugrauturinn inniheldur;
Vanillu kókos grísk jógúrt
Chia grautur
Hnetubiti
Bláber
Hnetumulningur
Hampfræ
Graskersfræ
Hnetukaramellusósa