Ragga Nagli: Lax með grænmetissmyrju

Ragga Nagli: Lax með grænmetissmyrju

Auður strigi málarans

Lax er jafnframt eins og auður strigi málarans því það má dressa hann upp í allskonar klæði til að gera hann gómsætan og gördjöss til átu. Til dæmis ofnbakaður og smurður með Allos pestósmyrju.

Allos smyrjurnar eru besti vinur Aðal í eldhúsinu því þær passa við allt…ALLT segi ég og skrifa. Á kjúlla, á lax, á bleikju, með Oumph, í allskyns pottrétti og grænmetisrétti. Smurt ofan á brauð eða hrökkbrauð, sem ídýfa fyrir grænmeti, eða bara sem sósa með kjöti. 

Allos smyrjurnar eru 70% grænmeti og mest 20% fita og þær eru bæði vegan og glútenfríar. Þær fást í allskyns bragðtegundum sem eru hver annarri gómsætari.

  • Maís og chili
  • Graskers og engifer
  • Rauðrófu og piparrót
  • Papriku tríó
  • Tómat og lauk
  • Bauna og basil
  • Spínat og furuhnetu…. og ég veit ekki hvað og hvað…

Uppskrift að ljúffengum og lekkerum laxi með Allos tómat- og lauksmyrju

500 gr laxaflak
2 msk Allos Tomato og Leek smyrja
Skvetta af sykurlausri möndlumjólk frá Isola Bio (bláa) til að þynna
2 msk hakkaðar möndlur frá Himneskri hollustu
Salt og pipar

Aðferð

  • Stilla ofn á 200°.
  • Leggja lax í ofnfast mót og salta og pipra eins og vindurinn.
  • Blanda saman Allos smyrjunni og möndlumjólkinni.
  • Smyrja blöndunni yfir laxinn.
  • Sáldra hökkuðum möndlum yfir.
  • Smella félaganum inn í ofn í 10 mínútur.

Þessi réttur er ljúffengur og lekker borinn fram með hrísgrjónablöndu frá Himneskri Hollustu (brún, villt, rauð), ofnbökuðu brokkolí og góðu salati. 

Allos smyrja

Möndlur HH

Allos smyrjurnar fást í Nettó, Hagkaup og Fjarðarkaup. 

 Höfundur: Ragga Nagli

NÝLEGT