Salthnetu og karamellu hafraklattar

Salthnetu og karamellu hafraklattar

Ég gerði tvær útgáfur af hafraklöttunum. Tegund 1 er með salt pekanhentum, sesamfræjum og karamellu. Tegund 2 er með hnetum, kókos, vanillu steviu og bláberja sultunni frá Good Good brand. Báðir klattarnir smökkuðust mjög vel. Báðar tegundirnar eru það bragðgóðar að það þarf ekki að smyrja neinu á þær.

Tegund 1: Karamellu hafraklattar með pekanhnetum

– 3 dl hafrar
– 1 egg 
– 2 dl möndlumjólk
– 6-8 dropar af Toffee karamellu steviu eftir smekk
– 1 dl sólblómafræ
– 1/2 dl sesamfræ
– 2 dl pekanhnetur gróft saxaðar
– Salt eftir smekk 

Tegund 2: Bláberja hafraklattar með vanillu og kókos

– 3 dl hafrar
– 1 egg 
– 1 dl möndlumjólk
– 1 msk bláberja sulta frá Good Good brand
– 2 dl kasjúhnetur og pekanhentur 
– 6-8 dropar af vanillu steviu eftir smekk
– 1/2 kókosmjöl 
– Salt eftir smekk 

Sama á við um báðar tegundirnar – Öllu blandað vel saman í skál, hneturnar gróflega saxaðar. Ef blandan er of þykk þá má bæta örlítið af möndlumjólk við og sömuleiðis ef blandan er of þunn bæta þá meira af höfrum við. Gott er að strá smá kókos eða sesamfræjum yfir bollurnar. 

Hver bolla er sirka 1msk. Setja á smjörpappír svo auðveldara er að taka þær upp. Inn í ofn á 200 gráður í 20-30 mín þar til þær brúnast vel á toppnum. 

Unnamed-7_1525276929772

Unnamed-9_1525276989373

Hráefnin sem ég notast við í hafraklattana eru frá Himneskri hollustu. 

Screen-Shot-2018-05-02-at-15.40.38Screen-Shot-2018-05-02-at-15.39.32Screen-Shot-2018-05-02-at-15.39.14

Njótið vel
Karitas Óskars

NÝLEGT