ér höfum við ljúffenga og ofureinfalda eplaböku. Þessi er dásamleg nýkomin úr ofninum með þeyttum rjóma eða ís. Hægt er að bera hana fram með sykurlausri súkkulaðisósu en uppskriftin að henni er líka að finna hér að neðan.
Skref 1: Ofn settur á 180 gráður og blástur.
Skref 2: Fjögur græn epli skoluð, toppurinn og botninn skorinn af, þau skorin smátt og síðan sett í form.
Skref 3: Dass af kanil, 2-3 msk af stevíu strásætu og vanilludropum dreift yfir eplin og hrært aðeins saman.


Skref 4: Í stóra skál fara 3 dl tröllahafrar og 2 dl kókosmjöl frá Himneskri Hollustu, 1/2 dl stevíu strásæta frá Good Good Brand, tæplega 1/2 dl kanill, sirka 100 gr mjúkt smjör og smá bleikt himalaya salt. Blandað saman með hreinum höndum.
Skref 5: Blandan úr skálinni sett ofaná eplin í forminu. Bakað í ofninum í sirka 45 mínútur eða þar til eplin eru orðin mjúk og blandan dökkbrún.
Skref 5: Bakan tekin úr ofninum og borin fram sem fyrst, svo dásamlegt þegar hún er heit eða volg með rjóma eða ís. Þú getur líka leyft henni að kólna orlítið og búið til sykurlausa súkkulaðisósu á meðan.
Sykurlaus súkkulaðisósa: 1 dl kókosolía frá Himneskri Hollustu, 1/2 dl hreint hlynsíróp, 1/2 dl sykurlaus möndlumjólk frá IsolaBio (ljósblá ferna), 1-2 tsk vanilludropar og smá himalaya salt. Allt sett í pott og leyft að malla aðeins. Síðan sett inní ísskáp og leyft að þykkjast aðeins.


Ef þú ákveður að prufa þessa segi ég bara verði þér innilega að góðu! Ef þú hefur áhuga á að fylgjast meira með mér þá er ég mikið að setja heilsumiðað efni á Instagram: @indianajohanns
Höfundur: Indíana Nanna Jóhannsdóttir