Mér finnst fátt skemmtilegra en að fara út að borða eða elda mér góðan mat – ætla að vera miklu duglegri árið 2018 að elda heima ferskan og hollan mat frá grunni
Prófaði marga veitingastaði en þeir sem stóðu mest uppúr eru Kröst Hlemmur Mathöll og Flatey
Bergsveinn útskrifaðist úr HR og hélt partý ársins
Ferðaðist um landið en hefði viljað gera mun meira af því
Fór í bestu ferð til Milan í sólina og heillaðist gríðalega mikið af Ítalíu
Byrjaði að hlaupa aftur eftir krossbandsslit og undirbjó mig fyrir hálfmaraþon
Opnaði mína eigin heimasíðu og í framhaldi byrjaði ég að skrifa fyrir H Magasín
Byrjaði að leika mér meira með farðanir eftir góða pásu og gera verkefni fyrir Inika
Fengum loksins íbúðina okkar afhenda
Fór í æðislega mæðgnaferð til London sem þið getið lesið meira um hér.
Yndislegasti tími ársins jólin
Takk kærlega fyrir að lesa þessa og ef ykkur langar að fylgjast meira með mér getiði kíkt á mig á Instagram.
www.instagram.com/hildursifhauks
Þangað til næst <3
– Hildur Sif Hauks