Á heimasíðunni unabakstur.is má finna fjöldan allan af einföldum og skemmtilegum uppskriftum fyrir alla fjölskylduna. Uppskriftirnar henta bæði dags daglega sem og fyrir betri tilefni. Það er Una Guðmundsdóttir sem á heiðurinn en hún elskar að einfalda lífið með góðum lausnum í eldhúsinu og leyfir okkur hinum að njóta með. Hún skellti nýverið í þessar dásamlegu spelt bollur sem eiga vel heima í nestisboxinu fyrir ferðalagið eða bara heima með góðu áleggi.
Innihald:
2,5 dl gróft spelt
2,5 dl fínt spelt
1msk kókosolía
1,5 dl sjóðandi vatn
1 dl Ab mjólk
2 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk sjávarsalt
1,5 dl af rifnum osti
1 dl ólífur saxaðar


Aðferð:
1. Hitið ofninn á 180 gráður
2. Blandið saman spelti, lyftidufti og sjávarsalti saman í skál og hrærið
3. Sjóðið vatn í potti
4. Setjið kókosolíuna saman við vatnið og leyfið að leysast upp, að því loknu er Ab mjólkinni blandað saman við
5. Saxið ólífur, ég nota grænar frá Muna og blandið þeim ásamt rifna ostinum saman við blönduna og að lokum er vökvanum bætt saman við
6. Hrærið varlega saman
7. Mótið litlar bollur og leggið á bökunarplötu með bökunarpappír
8. Hærið eitt egg og smá mjólk saman í skál og penslið yfir bollurnar
9. Bakið bollur í um 10-12 mínútur, fer aðeins eftir stærðinni á bollunum hversu lengi þær eru bakaðar.
Uppskriftin dugir í um 12-15 stykki bollur.