Súkkulaði kaffimöndlur Naglans

Súkkulaði kaffimöndlur Naglans

Ef þú hendir í þessar súkkulaði kaffimöndlur beint eftir vinnu í dag þá muntu fyllast svo miklu þakklæti í garð Naglans að þú sendir blóm og kransa express með DHL til Danmerkur.

Ef þessar dúllur leynast í kælinum þegar Siggi sæti bankar á öxlina eftir kvöldmat þá er engin ástæða til að fara á bólakaf í sykursósaðan blandípokann. Þessar möndlur munu bjarga geðheilsunni.

Þessar dásamlegu möndlur er afar einfalt að útbúa.

Innihald:

2 bollar ristaðar möndlur

2 msk. Skyndikaffi

2 msk Good Good Sweet like sugar

120g ósætað Now hrákakó

250g brætt sykurlaust dökkt súkkulaði að eigin vali

Aðferð:

  1. Rista möndlur í 180° heitum ofni í 15-20 mínútur
  2. Bræða súkkulaðið
  3. Blanda skyndikaffi, kakó og erythritol saman í skál
  4. Löðra möndlum upp úr súkkulaðinu og síðan upp úr kaffikakó blöndunni
  5. Sáldra sjávarsalti yfir
  6. Þrykkja í kæli í 5-10 mínútur þar til súkkulaðið hefur harðnað

Njóta og fyllast þakklætis!

https://nowfoods.is/

Good Good Ísland

NÝLEGT