Sumargranóla með kókos og þurrkuðum mangó

Sumargranóla með kókos og þurrkuðum mangó

Innihald:

Þurrefni:

3 dl tröllahafrar frá Himneskri Hollustu

1 dl möndlur frá Himneskri Hollustu (hakkaðar niður, ef vill)

1-2 dl kókosmjöl frá Himneskri Hollustu 

1/2 pakki af fræblöndu frá Himneskri Hollustu (graskersfræ, hörfræ og sólblómafræ) 

1/2 pakki þurrkað mangó frá Himneskri Hollustu (rifinn niður, ef vill)

Blautefni:

1 dl af ljósu agave sírópi frá Himneskri Hollustu (líka hægt að nota akasíu hunang) 

1/2 – 1 dl af fljótandi kókosolíu frá Himneskri Hollustu

_mg_6942Aðferð: 
Byrjið á því að hita ofninn upp í 150°C og á meðan skal setja hafrana, möndlurnar, fræin og kókosmjölið í stóra skál og hræra því saman. Ég bæti mangóbitunum við síðustu 10 mínúturnar svo þeir mega bíða í bili.

Næst skal bæta sætunni og kókosolíunni út á og blanda öllu vel saman. Mér þykir best að blanda þessu saman með sleikju.

Leggið svo granólablönduna á plötu með bökunarpappír og dreifið vel úr blöndunni yfir plötuna. Við viljum þunnt lag, ekki þykkt svo blandan bakist vel.

Setjið granólablönduna inn í ofn á 150°C og ristið í um það bil 40 mínútur en hrærið í granólablöndunni á 10-15 mínútna fresti. Þetta kemur í veg fyrir að hún brennur og einnig ristast granólablandan jafnt. Ég einfaldlega tek plötuna úr ofninum og loka honum svo hitinn sleppi ekki út. Svo hræri ég vel saman í blöndunni með sleikju og set hana aftur inn í ofn og endurtek þetta þar til granólablandan er búin að vera í 40 mínútur í ofninum. 

Þegar þú tekur plötuna út í síðasta sinn skaltu bæta við mangóbitunum. Ég reif þá niður í smærri bita bara með höndunum en hægt er að nota hníf líka. Það sakar ekki að fylgist vel með granólablöndunni síðustu mínúturnar.

Þegar búið er að rista granólablönduna skal taka hana úr ofninum og leyfa blöndunni að kólna í 20+ mínútur en við kælingu þá harðnar granólablandan og verður meira “crunchy”. Geymið í loftþéttu íláti í allt að 10-14 daga. Ég geymi granóla aldrei inn í ísskáp heldur bara upp í skáp en mér finnst bragðið haldast betur þannig. 

Ef þið viljið fylgjast betur með mér getið þið fylgt mér á Instagram eða bætt mér við á Snapchat en ég er undir nafninu astaeats

Þangað til næst, verið heil og sæl! 


Þessi færsla er unnin í samstarfi við Himneska Hollustu

Höfundur: Asta Eats

 

NÝLEGT