Kúrkúma, túrmerik eða gullinrót er planta af engifersætt sem vex á Indlandi og víðar. Túrmerik er austurlenskt krydd með sterkum gulum lit.
Hún er beisk á bragðið; líkist engiferplöntu en er með lengri blöðum; rótarstilkar þeirra eru notaðir og unnið er úr þeim litarduft sem er notað í karrí og fleiri kryddblöndur, til dæmis í paprikuduft til að gefa lit. Kryddið, sem hefur verið ræktað í a.m.k tvö þúsund ár í Asíu, er þurrkað og malað og notað í karríblöndur og marga indverska og norður-afríska rétti og gefur þeim sterkan lit. Hins vegar þarf að gæta að það bletti ekki fatnað.
Bólgueyðandi
Túrmerik er sérstaklega þekkt fyrir að vera bólgueyðandi en það er þökk sé curcumin sem er virka efnið í túrmerik. Curcumin er kröftugt andoxunarefni en það er erfitt fyrir líkamann að taka curcumin upp í blóðrásina og því er curcumin oft tekið með svörtum pipar. Í svörtum pipar er efnið ‘piperine’ sem eykur upptöku curcumin um 2000%!
Túrmerik verndar hjartað
Curcumin hefur sýnt fram á að það lækkar LDL (slæma) kólesteról líkamans og viðheldur því heilbrigðu hjarta. Curcumin kemur einnig í veg fyrir blóðtappa.
Verndar heilastarfsemi
Elliglöp og Alzheimer eru oft tengd við vaxtarhormónið BDNF. Curcumin hefur jákvæð áhrif á BDNF og getur seinkað eða jafnvel umsnúið mörgum heilasjúkdómum eða hrörnun heilans vegna gamals aldurs.
Minnkar líkur á krabbameini
Túrmerik kann vera eitt kröftugasta náttúrulega efnið sem berst gegn krabbameini. Það getur komið í veg fyrir vöxt krabbameins og einnig hindrað útbreiðslu þess.
Túrmerik drykkur
- Safi úr 1/2 sítrónu
- 1/4 – 1/2 tsk af túrmerik kryddi frá Himneskri Hollustu
- Dass af svörtum pipar
Allt sett út í glas af heitu vatni og hrært vel saman. Athugið að túrmerik á það til að sökkva á botninn svo ég mæli með að hræra reglulega í glasinu á meðan drukkið er.
Ef þið viljið fylgjast betur með mér getið þið fylgt mér á Instagram eða bætt mér við á Snapchat en ég er undir nafninu astaeats
Þangað til næst, verið heil og sæl!
Þessi færsla er gerð í samstarfi við Himneska Hollustu
Höfundur: Asta Eats
Heimildir teknar af vefsíðunni: http://www.healthy-holistic-living.com