Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir nafnið Greta Thunberg?
„Ætli hún sé á ketó? Ætli hún borði brauð þarna á skipinu?“
En þegar þú heyrir nafnið Vigdís Finnbogadóttir?
„Hvað skyldi hún vera þung? „
Ef við nefnum Angelu Merkel í þín eyru? Er þá fyrsta hugsunin:
„Hvaða buxnastærð ætli hún noti í dragtinni?“
En þegar þú lest um Katrínu Jakobsdóttur?
„Ætli hún sé á 16:8 að fasta fram á hádegi? Eða kannski á fimmtveimur.“
Hvað með nóbelsverðlaunahafan Malala Yousafzai?
Ertu að velta fyrir þér hvað lærin hennar séu margir sentimetrar í ummál ?
Ekki???
Þegar þú hugsar um flottar konur í kringum þig detta frekar í hug orð eins og hugrökk. Hlý. Greind. Gáfuð. Fyndin. Staðföst. Traust. Virðuleg. Heiðarleg. Hugsunarsöm
Mataræðið. Buxnastærðin. Þyngdin. Brjósthaldarastærðin, allt eru þetta óáhugaverðustu eiginleikarnir okkar. Við skilgreinum ekki annað fólk útfrá númerískum viðmiðum. Aðrir skilgreina okkur ekki heldur útfrá tölu á vigt eða númeri á brók. Eða hvað við borðuðum í hádeginu.
Það gerum við bara við okkur sjálf. Gegndarlaus samanburður við tölur og númer, staðla og norm. Stútfull upp í kok af frústrasjón og vonleysi yfir að ná ekki númerískum viðmiðum sem miðlarnir troða í smettið á hverjum degi. Hvað stendur innan í brók eða haldara ákvarðar virði okkar sem manneskja
Tilviljanakenndar tölur sem hinar ýmsu græjur gubba útúr sér. Kaloríuteljari, fitumælir, vigt, skrefamælir og málband.
Hæfileikar felast ekki í lögun líkamans. Virðing er ekki mæld í númeri á brók. Dugnaður er ekki metinn í umfangi þjóhnappa. Metnaður er ekki tala á vigt. Afrek koma svæðinu í kringum naflann ekkert við
Fólkið í kringum þig metur þig útfrá gildum þínum. Framkomu. Karakter. Hæfileikum. Dugnaði. Metnaði. Verkum þínum.
Þú ert ekki númer. Þú ert ekki umbúðirnar.
Þú ert það sem þú gerir og það sem þú segir.
Höfundur: Ragga Nagli